Maður brýst inn í svínabú og opnar stíurnar. Hann hélt að svínin myndu hlaupa glöð út.
Í nóvember 2026 birti maður myndskeið innan úr svínabúum Stjörnugríss, stærsta svínakjötsframleiðanda landsins. Þar sáust dauðir grísir og svín með sár. Við spurðum sjö þekkta Íslendinga hvað þeim finnst um svínakjöt á jólum.
Að herferðinni standa Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) í samstarfi við 1000 Whales. Frá árinu 2022 hafa samtökin hvatt fólk til að sleppa svínakjöti um jólin, ekki síst hamborgarhryggnum.
25 ára karlmaður hefur játað innbrot í gyltubú Stjörnugríss á Brimnesi. Hann tók upp myndefni þar og í öðru svínabúi á Kjalarnesi.
Hann sagði Vísi að hann hefði alls farið inn í fimm bú, þrjú svínabú og tvö alifuglabú, og hleypt dýrum lausum í tveimur þeirra. Starfsmaður kom að honum þegar hann reyndi að koma fyrir falinni myndavél í gasklefa í sláturhúsi fyrirtækisins. Hann segist hættur innbrotum og ætla að berjast fyrir bættum aðbúnaði dýra „á löglegan hátt“.
Vísir, 6. nóv. 2026Maður brýst inn í svínabú og opnar stíurnar. Hann hélt að svínin myndu hlaupa glöð út.
Þau löbbuðu bara um inni í húsinu. Hann segist hafa breytt um aðferð og farið að mynda.
Hann birtir tvö myndbönd innan úr búunum: legusár, dauðir grísir, þröngir básar.
Matvælastofnun ætlar að rannsaka myndefnið og innbrotið.
Fyrrverandi eftirlitsdýralæknir segist hafa gert sömu athugasemdir ár eftir ár.
Í Kastljósi kallar formaður Bændasamtakanna þetta frávik. Dýraverndarsambandið vill engar frekari undanþágur.
Ráðherra: óásættanlegt, ef rétt reynist. Hún bíður niðurstöðu Matvælastofnunar.
Ráðuneytið birtir drög að nýjum lögum um velferð dýra. Öllum er frjálst að senda umsögn til 4. desember.
Enn engin niðurstaða frá Matvælastofnun.
Myndskeiðin sýna fyrst og fremst afleiðingar fyrra innbrotsins.
Fyrirtækið kallar innbrotin dýraníð, segir fimmtán smágrísi hafa drepist vegna þeirra og segir myndefnið gefa mjög villandi mynd af starfseminni. Þjónustudýralæknir skoði búið á tveggja vikna fresti og eftirlit Matvælastofnunar 15. október hafi verið án alvarlegra athugasemda. Forstjórinn segir að básarnir séu opnanlegir.
„Öll myndskeiðin sem ég hef birt voru tekin áður en ég hleypti svínunum út.“
Hann segir flestar klippurnar í seinna myndbandinu vera úr búi þar sem hann opnaði engar stíur. Hann segist ekki vita hvort einhver dýr hafi meiðst eftir að hann hleypti þeim út.
„Stofnunin mun ekki horfa fram hjá ef brotið hefur verið á dýrum.“
Í yfirlýsingu yfirdýralæknis segir að sár geti komið fyrir í öllu dýrahaldi þótt ákvæði um aðbúnað séu uppfyllt, en þá beri umráðamanni að bregðast strax við. Gríslingar geti fæðst andvana og utanaðkomandi streita geti komið goti af stað fyrir tímann. Stofnunin hafi verið upplýst um fósturmissi og að fæðing hafi farið af stað hjá nokkrum gyltum í tengslum við innbrotið. Hún segist hafa eftirlit með svínabúum minnst einu sinni á ári.
Óheimilt er að klippa hala grísa nema brýna nauðsyn beri til. Í janúar 2026 kom fram í skýrslu atvinnuvegaráðherra til Alþingis að grísir eru halaklipptir á öllum gyltubúum á landinu.
Allir svínaræktendur hafa undanþágu Matvælastofnunar til að klippa hala. Ástæðan samkvæmt skýrslu ráðherra: séu halar ekki klipptir bíta svínin í hala hvert annars, og það fer verr með þau en klippingin. Í skýrslunni er líka talið upp hvað veldur halabiti: of lítið pláss, slæmt loft, léleg birta og mikill hávaði.
RÚV um skýrslu ráðherra, 16. jan. 2026| Reglugerðin | Í framkvæmd | |
|---|---|---|
| Halar | Óheimilt er að klippa hala nema dýralæknir meti brýna nauðsyn. Í mesta lagi má stytta hala um helming, og þá með deyfingu og verkjastillingu. | Klippt á öllum gyltubúum. Matvælastofnun hefur frá 2016 gert 28 athugasemdir við halaklippingar, meðal annars um að of stór hluti hala hafi verið klipptur og að verkjameðhöndlun eða deyfing hafi ekki verið næg. |
| Básar | Svín skulu höfð í lausagöngu. Gyltu má loka á bás frá sjö dögum fyrir got til sjö daga eftir got, eða vegna læknismeðferðar. | Við eftirlit árið 2024 höfðu flest bú uppfyllt kröfur um lausagöngu gyltna. Meirihluti þeirra hafði ekki uppfyllt allar kröfur um gólfgerð og legurými. |
| Hálmur | Öll svín skulu ávallt hafa aðgang að nægilegum hálmi eða öðru efni til að róta í. | DÍS segir myndefnið frá nóvember sýna skort á undirburði fyrir dýrin að róta í. |
| Sár | Undirburður og undirlag skulu fyrirbyggja legu- og bógsár. Komi sár engu að síður skal meðhöndla þau í samráði við dýralækni. | Á myndefninu frá nóvember sjást svín með legusár. Matvælastofnun rannsakar málið. |
Svínabændur höfðu til 1. janúar 2025 til að uppfylla kröfur reglugerðarinnar frá 2014 um aðbúnað. Eitt af nítján svínabúum landsins uppfyllti þær allar.
Ingvi Stefánsson er formaður Félags svínabænda. Bú hans er að sögn Vísis það fyrsta hér á landi sem byggt er frá grunni út frá kröfum um dýravelferð. Hann segir tafir vegna skipulags- og seirumála helstu ástæðuna. Sjálfur tafðist hann í skipulagsmálum í um fjögur ár. Bændasamtökin nefndu einnig skort á fjármagni og óskuðu eftir fresti til 2030.
Viðbótarfrestur er háður því að framleiðandi sýni fram á að hann hafi gripið til ráðstafana en ekki orðið ágengt af ástæðum sem hann ber ekki ábyrgð á. Vísir hefur spurt Stjörnugrís hvort fyrirtækið hafi sótt um slíkan frest.
Vísir, 10. nóv. 2026 · Reglugerð nr. 1622/2024Áætlað út frá 68% aukningu sem greint var frá fyrir 2021
Reikningurinn er mat greinarinnar sjálfrar frá 2015, á verðlagi dagsins.
Fimmtán dögum áður en fresturinn rann út heimilaði Bjarni Benediktsson allt að þrjú ár til viðbótar.
Hann gegndi embætti matvælaráðherra í rúma tvo mánuði, í starfsstjórn. Með reglugerð hans fékk Matvælastofnun heimild til að veita frest til 1. janúar 2028.
Á sömu tveimur mánuðum gaf hann út ný hvalveiðileyfi.
Reglugerð nr. 1622/2024 · Vísir, 9. nóv. 2026svínum slátrað á Íslandi á meðaldegi árið 2025
Dýraverndarsamtök segja að um níutíu prósent svína á Íslandi séu deyfð með gasi fyrir slátrun. Svínin eru látin síga niður í koltvísýring þar til þau missa meðvitund.
Breska dýravelferðarnefndin (Animal Welfare Committee) komst að þeirri niðurstöðu í október 2025 að koltvísýringur í háum styrk valdi svínum sársauka, andnauð og ótta. Meðvitundarleysi næst á 21 til 60 sekúndum. Nefndin lagði til að aðferðin yrði bönnuð við deyfingu svína.
SDÍ, 2023 · DÍS, 6. nóv. 2026 · Animal Welfare Committee, gr. 50, 103 og 134Fimm mánuðir.Svo gamalt er svín þegar því er slátrað, um 100 kg að þyngd.
Bændablaðið, 1 feb. 2023: 150 til 160 dagar, á einu íslensku búiHamborgarhryggur, beikon, skinka, pepperóní og pylsur. SDÍ hvetur fólk til að kaupa þetta ekki um jólin.
Um svínin →SDÍ er á Instagram og Facebook sem @dyravelferd og 1000 Whales á Instagram sem @1000whales.
SDÍ á Instagram →Drög að nýjum lögum um velferð dýra eru í Samráðsgátt til 4. desember. Samkvæmt drögunum má áfram veita öðrum en dýralæknum leyfi til að klippa hala grísa. Sendu ráðuneytinu umsögn.
DÍS vill að stjórnvöld endurskoði viðbótarfrestinn og að lágmarki að 1. janúar 2028 verði endanlegur. Sendu þingmanninum þínum línu.
Netföng þingmanna →